Föstudaginn 10. apríl kl. 12.05 verður hádegisleiðsögn um sýninguna Vörður með verkum eftir Jónínu Guðnadóttur.
Í verkunum á sýningunni leitar Jónína aftur til bernsku sinnar og mótunarára um miðja síðustu öld. Hún finnur hugmyndum sínum form í skúlptúrum og veggverkum þar sem saman fara fjölbreyttur efniviður á borð við steinsteypu, gler og leir.
Nánar um sýninguna hér.