Kærleikskúlan

2003-2013

Á aðventunni verður sett upp sýning á Kærleikskúlu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 2003-2013 í glugga Hafnarborgar sem snýr að Strandgötu. Þar gefst tækifæri til að skoða allar gerðir Kærleikskúlunnar frá upphafi, auk þess sem sýndar verða handmálaðar frumgerðir, vinnuteikningar og fleira sem gefur innsýn í hugmyndavinnu listamannanna. Styrktarfélagið hefur staðið að útgáfu Kærleikskúlunnar frá árinu 2003 en ár hvert fær kúlan nýtt útlit og er verkið í höndum fremstu listamanna þjóðarinnar. Þeir listamenn sem komið hafa að gerð kærleikskúlunnar eru Erró, Ólafur Elíasson, Rúrí, Gabríela Friðriksdóttir, Eggert Pétursson, Gjörningaklúbburinn, Hreinn Friðfinnsson, Katrín Sigurðardóttir, Yoko Ono og Hrafnhildur Arnardóttir en nú í ár er kúlan unnin af Ragnari Kjartanssyni.