Syngjandi jól

Laugardaginn, 6. desember fyllist Hafnarborg af söng og hátíðaranda frá morgni fram á kvöld en þá koma saman fjölmargir kórar Hafnarfjarðar skipaðir söngfólki á öllum aldri. Syngjandi jól eru nú haldin í átjánda sinn og eru samstarfsverkefni skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, skrifstofu menningar- og ferðamála og Hafnarborgar. Vegna tónleikanna eru sýningar Hafnarborgar eru ekki opnar á laugardaginn.

Dagskráin er eftirfarandi:

09.40-10.00    Leikskólinn Hvammur

10.00-10:20    Leikskólinn Stekkjarás

10:20-10:40    Leikskólinn Álfasteinn

10:40-11:00    Leikskólinn Brekkuhvammur

11:00-11:20    Kór Öldutúnsskóla

11.20-11:40    Litli kór Öldutúnsskóla

11:40-12:00    Leikskólinn Arnarberg

12:00-12:20    Hraunvallaskóli (leikskóli)

12:20-12:40    Kór Áslandsskóla

12:40-13:00    Kór Setbergsskóla

13:00-13:20    Kór Flensborgarskóla

13:20-13:40    Hrafnistukórinn

13:40-14:00    Skátakórinn

14:00-14:20    Karlakór eldri Þrasta

14:20-14:40    Barna- og unglingakór Hafnarfjarðarkirkju

14:40-15:00    Gaflarakórinn

15:00-15:20    Kvennakór Hafnarfjarðar

15:20-15:40    Gospelkór Ástjarnarkirkju