Strandgatan – Módelsmíði fyrir börn og fullorðna

Vinnustofan Þinn staður – Okkar bær er nú opin í Hafnarborg þar sem rýnt er í það sem er efst á baugi í framkvæmdum og skipulagsmálum í miðbæ Hafnarfjarðar og aðliggjandi svæðum.
 
Ýmsir viðburðir verða í boði í tengslum við vinnustofuna og á sunnudag, 13. mars verður fimm metra langt módel af Strandgötu smíðað úr pappa og myndskreytt. Börn og fullorðnir á öllum aldri hvattir til að mæta.
 
Hafnarborg ásamt Umhverfis og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðar og Markaðsstofu Hafnarfjarðar standa sameiginlega að opinni vinnustofu þar sem helstu framkvæmdir og skipulagsverkefni í miðbæ Hafnarfjarðar og nágrenni hans verða kynnt. Samþætting grasrótarstarfs og starfs skipulagsyfirvalda verður skoðuð sérstaklega með aðstoð frá Mariu Lisogorskaya frá Assemble. Skipulag og hönnun umhverfis skiptir okkur öll miklu máli og getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir það mannlíf sem ætlað er að dafna á hverjum stað. Mikilvægt er að sem flestar raddir fái að hljóma í skipulagsvinnunni og tekið sé tillit til óska þeirra sem eiga að gæða hið byggða umhverfi lífi með nærveru sinni. Í þessari vinnustofu gefst almenningi tækifæri til að ræða áherslur skipulagsyfirvalda og koma með ábendingar um það sem vel er gert og hvað má bæta. Sýningarstjóri er Magnea Guðmundsdóttir, arkítekt.
 
Vinnustofan er hluti af Hönnunarmars 2016.