Slavnesk þjóðlög – tónleikar og söngsmiðja

Mánudaginn 4. október frá kl. 15:30 mun safnið fyllast af þjóðlagatónlist, er söngur og sagnir þjóða af slavneskum uppruna, úr austri og vestri, fá að óma um rýmið.

Þeim, sem vilja hlusta á sönginn, býðst því að njóta lifandi tónlistar og flutnings slavneskrar þjóðlagatónlistar, í bland við sögur af gömlum sið, en þeim, sem vilja taka þátt, býðst tækifæri til þess að læra ýmis þjóðlagabrot og þjóðdansa frá hinum slafneska menningarheimi.

Í upphafi verða tónleikar, þar sem flutt verða slavnesk þjóðlög og heyra má söngva frá Póllandi, Úkraínu, Hvíta-Rússlandi, Balkanskaga og víðar. Til þess að miðla þessum menningararfi verður hvert lag kynnt og sett í samhengi við hið slafneska hátíðardagatal, auk þess sem þau verða tengd við gamlar hefðir og hætti.

Því næst verður boðið upp á slavneska söng- og þjóðlagasmiðju (án þess að gerðar séu nokkrar kröfur um tungumálahæfni), auk þess sem kenndir verða einfaldir og – þar sem mikið er um viðkvæma safnmuni allt í kring – rólegir þjóðdansar frá Póllandi.

Umsjón með viðburðinum, bæði tónleikunum og söngsmiðjunni, hafa fimm söngvarar og tónlistarflytjendur frá Póllandi: Anna Sitko, Dagna Tańska, Maria Franas, Anna Kaźmierak og Nina Szczudlik, sem eru allar virkar í eigin þjóðlagasenu. Þá hafa þær brennandi áhuga á dansi, tónlist og þjóðmenningararfinum og vilja ólmar miðla þessari þekkingu með fólki af ólíkum uppruna.

Tónleikarnir og söngsmiðjan eru hluti af dagskrá haustsýningar Hafnarborgar, Samfélags skynjandi vera, í sýningarstjórn Wiolu Ujazdowska og Hubert Gromny. Sýningin opnaði í safninu 28. ágúst og stendur yfir til 31. október.

Verið öll velkomin – ókeypis aðgangur.