Sjónarhorn – leiðsögn um Ósýndarheima

Miðvikudaginn 19. apríl kl. 14 bjóðum við gesti velkomna á næsta viðburð Sjónarhorna, fræðslustunda fyrir eldra fólk, í Hafnarborg. Þá mun sérfræðingur safnsins spjalla um sýninguna Ósýndarheima, þar sem sjónum er beint að stafrænni list, ljósmyndun, hreyfimyndum, raunsæi og ofurveruleika.

Á s‎ýningunni er að finna verk eftir sex íslenska og erlenda samtímalistamenn sem takast á við hugmyndir um raunveruleika og sýndarleika. Í verkum þeirra birtast hugmyndir um aftengingu, kvíða og þ‏‏á gráglettni sem einkennir kynslóðina sem nú lifir og hrærist í umhverfi nýmiðlunar. Með því að beita fyrir sig stafrænum tjáningarmöguleikum draga þau meðal annars fram satíruna sem felst í streituvaldandi lífsmynstri 21. aldarinnar.

Sjónarhorn er dagskrá sem hófst í Hafnarborg vorið 2022 en safnið leggur áherslu á að gefa öllum tækifæri til að kynnast menningu og listum og býður upp á leiðsagnir fyrir alla aldurshópa. Er markmiðið að gefa innsýn í starfsemi Hafnarborgar, yfirstandandi sýningar eða einstök verk úr safneign með mánaðarlegum viðburðum yfir vetrartímann. Boðið er upp á kaffi og meðlæti að lokinni dagskrá.

Aðgangur ókeypis – sjáumst í Hafnarborg.


Dagskráin framundan

19. apríl kl. 14
Leiðsögn um sýninguna Ósýndarheima

17. maí kl. 14
Ritaðar myndir og texti í myndlist