Minkurinn, fjölskyldusmiðja og undarleg tól.

Fjölbreytt dagskrá veður í boði í Hafnarborg sunnudaginn 12. nóvember frá klukkan 14 til 16 í tengslum við sýningarnar tvær sem standa nú yfir í safninu, Japnsk nútímahönnun 100 og Með augum Minksins – Hönnun, ferli, framleiðsla.

Klukkan 14 Búi Bjarmar Aðalsteinsson, vöruhönnuður, flytur erindið Hversdagslegar lausnir við óræðum vanda þar sem hann fjallar um Chindogu sem er japönsk hönnunarstefna. Chindogu þýðist á íslensku sem „undarleg tól“ og er að mörgu leiti andstæða þeirri öguðu og minimalísku vinnubragða sem japönsk hönnun er þekkt fyrir.

Klukkan 15 – Elísabet V. Ingvarsdóttir annar sýningarstjóri sýningarinnar Með augum Minksins verður með sýningarstjóraspjall ásamt hugmyndasmiðum Minksins þeim Ólafi Gunnari Sverrissyni og Kolbeini Björnssyni.

Klukkan 14 – 16 – Fjölskyldusmiðja. Fjölskyldum gefst tækifæri til að læra að gera origami, pappírslist að japönskum sið og einnig að prófa sig áfram í hefðbundinni japanskri skrautskriftagerð. Lea Midny Jedrzejek, nemi í japönsku við Háskóla Íslands hefur umsjón með smiðjunni.

Sýningin Japönsk nútímahönnun 100 er farandsýning sem leggur áherslu á hönnun nytjahluta frá árunum 2010 – 2017. Þar hafa hundrað vandaðar hönnunarvörur verið valdar til sýningar um allan heim. Á sýningunni er að finna hversdagslega gripi sem sýna ekki aðeins fremstu hönnun og nýjustu stefnur í Japan, heldur varpa einnig ljósi á líf og áherslur fólks, sem lifir og hrærist í japanskri samtímamenningu.

Sýningin Með augum Minksins – Hönnun, ferli, framleiðsla fjallar um hönnunarferlið frá hugmynd til tilbúinnar vöru. Á sýningunni, í Sverrissal, er ljósi varpað á hönnun og þróun ferðavagnsins Minksins sem dæmi um íslenska hönnun og framleiðslu þar sem hönnunarhugsun er fylgt frá upphafi til enda.