Menningargöngur í Hafnarfirði sumarið 2015

Í sumar er boðið upp á menningargöngur með leiðsögn öll fimmtudagskvöld kl. 20. Hver ganga tekur um klukkustund, þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.

Dagskrá sumarsins:

4. júní: Flensborgarhöfn – Mannlíf og atvinnulíf
Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt, ásamt rekstraraðilum á svæðinu.
Gengið frá Hafnarborg.

11. júní: Hlutverk St. Jósefssystra í samfélaginu
Gunnhildur Sigurðardóttir, fyrrverandi hjúkrunarforstjóri, leiðir gönguna.
Gengið frá Hafnarborg.

18. júní: Þær höfðu áhrif
Gengið um slóðir áhrifakvenna í hafnfirskum stjórnmálum.
Gengið frá Pakkhúsi Byggðasafnsins.

25. júní: Frá sjónarhóli kvenna
Ljósmyndasýning við strandstíginn skoðuð með leiðsögn.
Gengið frá Pakkhúsi Byggðasafnsins.

2. júlí: Skrúðgarðurinn Hellisgerði
Steinar Björgvinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar.
Gengið frá inngangi Hellisgerðis við Reykjavíkurveg.

9. júlí: Neisti listarinnar
Gengið um slóðir listakonunnar Hönnu Davíðsson.
Gengið frá Pakkhúsi Byggðasafnsins.

16. júlí: Rölt um listaslóðir
Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundur.
Gengið frá Bókasafni Hafnarfjarðar.

23. júlí: Víðistaðatún
Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt.
Gengið frá Skátaheimilinu við Hjallabraut.

30. júlí: Hugað að náunganum
Sagt frá þátttöku kvenna í uppbyggingu umönunar og heilsugæslu.
Gengið frá Pakkhúsi Byggðarsafns.

6. ágúst: Verslunarsaga
Lúðvík Geirsson, fyrrum bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Gengið frá Hafnarborg.

13. ágúst: Loksins klukknahljómur
Fjallað um kirkjusögu Hafnarfjarðar.
Gengið frá Hafnarborg.

20. ágúst: Ásgeir G. Stefánsson og framlag hans til íslenskrar byggingarlistar
Pétur H. Ármannsson, arkitekt, og Jónatan Garðarsson.
Gengið frá Hafnarborg.

27. ágúst: Vettvangur æskunnar
Árni Guðmundsson, félagsuppeldisfræðingur, leiðir göngu um slóðir unglingamenningar.
Gengið frá Hafnarborg.