Leiðsögn og lengri opnunartími.

Föstudaginn 22. apríl verður opið í Hafnarborg til kl. 22 í tilefni Bjartra daga, menningarhátíðar Hafnarfjarðar.  Klukkan 20 þann sama dag verður svo haldin leiðsögn um sýninguna Umgerð sem nú stendur yfir í aðalsal safnsins.

 Verkið er þrívíð innsetning sem leggur undir sig sýningarrýmið og teygir anga sína um veggi og gólf í aðal-sal safnsins. Innsetningin tekur breytingum þar sem mismunandi myndum er varpað yfir salinn og lýsingin breytist. Verkið rambar á mörkum málverks og ljósmyndar eða stakra skúlptúra og heildrænnar innsetningar.

Á sýningunni er veltir fyrir sér myndlist bæði frá sjónarhóli myndlistarmannanna sem listamanna en einnig með augum áhorfenda sem eru hvattir til þess að taka myndir í innsetningunni á hvern þann máta sem verkið blæs þeim í brjóst.

Hugsteypan er samstarf myndlistamannanna Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur (f. 1976) og Þórdísar Jóhannesdóttur  (f. 1979) en þær útskrifuðust báðar úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2007. Ingunn og Þórdís starfað jöfnum höndum saman undir merkjum Hugsteypunnar síðan árið 2008 og í sitt hvoru lagi við eigin myndlistarverkefni. Sem Hugsteypan hafa þær tekið þátt í fjölda sýninga t.a.m. í Kling & Bang gallerí, Hafnarborg, Listasafni Árnesinga, Listasafni Akureyrar og Gallerí Ágúst, auk nokkurra samsýninga erlendis. Efnistök Hugsteypunnar hafa verið allt frá hugleiðingum um listasöguna og eðli myndlistar til notkunar á viðurkenndum aðferðum rannsókna við gerð myndlistarverka. Þær stöllur stunda nú meistaranám í myndlist við Listaháskóla Íslands.