Kammertónleikar

Gunnar Kvaran sellóleikari og Selma Guðmundsdóttir píanóleikari

Gunnar Kvaran sellóleikari og Selma Guðmundsdóttir píanóleikari leika þekktar tónlistarperlur á borð við Ave Mariu eftir Bach-Gounod, Svaninn eftir Saint-Saëns, Rondo og Menuett eftir Boccherini, Nótt eftir Árna Thorsteinsson og fleiri lög, sem margir þekkja en þar að auki flytja þau lengri tónverk eftir Robert Schumann og  Francois Couperin.

Gunnar Kvaran og Selma Guðmundsdóttir hafa starfað saman í meira en 20 ár. Gunnar hefur spilað fjölmarga tónleika í Hafnarborg ásamt Tríói Reykjarvíkur en tríóið kom fram á reglulegum kammertónleikum Hafnarborgar í tæplega aldarfjórðung. Saman hafa Selma og Gunnar komið fram á tónleikum víða, bæði hér heima og erlendis, og meðal annars leikið um 200 tónleika fyrir íslensk skólabörn, sem hefur verið mikilvægur þáttur í samstarfi þeirra. Tvær geislaplötur hafa verið gefnar út með samleik þeirra: Elegía árið 1996 og Gunnar og Selma, árið 2004 þar sem þau leika rómantísk verk fyrir selló og píanó. Í júní 2012 héldu þau Gunnar og Selma í tónleikaferð til Kína þar sem þau héldu m.a. tónleika í Peking, Shanghai, Yangzhou og Hangzhou. Þau hafa verið virk á íslensku tónleikasviði um árabil bæði sem einleikarar og í kammerhópum ásamt mörgum af ástsælustu flytjendum landsins.

Húsið opnar kl. 19 og tónleikarnir hefjast kl. 20.
Almennt miðaverð er kr. 2500 en fyrir eldri borgara og námsmenn kr. 1500.