Hvítt – Gaflaraleikhúsið í Hafnarborg

Sunnudaginn 17. janúar  kl. 13.00 frumsýnir Gaflaraleikhúsið verðlaunasýninguna Hvítt í Apótekarasal Hafnarborgar. Sýningin er framleidd í samstarfi við Catherine Wheels leikhúsið í Skotlandi, Góða Gesti, Hafnarfjarðarbæ, Mennta og Menningarmálaráðuneytið og Hafnarborg. Leikstjóri Hvítt er Gunnar Helgason og leikarar eru María Pálsdóttir og Virginia Gillard.

Áhorfendur er boðnir velkomnir á stað þar sem allt er hvítt.  Þetta er heimur  sem glitrar, glansar og skín á nóttunni og er fullur af fuglasöng og fuglahúsum. Heimurinn er bjartur, skipulagður og hvítur, En uppi í trjánum er ekki allt hvítt. Litirnir birtast. Fyrst rauður…svo gulur…svo blár.

Hvítt er leikandi létt og afar sjónræn sýning fyrir ung börn frá 2 til 5 ára og fullkomin sem fyrsta reynslan af leikhúsinu. Sýningin sem kemur frá Catherine Wheels leikhópnum í Skotlandi hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verið sýnd um allan heim.

Að lokinni leiksýningunni mun Hafnarborg bjóða sýningargestum í einstaka ferð um sýningu listamannsins Kristbergs Péturssonar, Hraun og mynd, þar sem börnin fá einnig tækifæri á að uppgötva litina sem leynast  í dökku hrauninu.

Sýningar verða alla sunnudaga kl 13.00. Miðasala er í síma 565 5900 og á midi.is. Miðasalan er opin alla virka daga frá 13-18 í Gaflaraleikhúsinu  og klukkutíma fyrir sýningu í Hafnarborg.