Hraun og mynd – síðasti sýningardagur

Kristbergur Ó. Pétursson

Sunnudaginn 13. mars er síðasti sýningardagur sýningarinnar Hraun og mynd með verkum eftir hafnfirska listmálarann Kristberg Ó. Pétursson.

Eftir margra áratuga samneyti við hraunið í heimabyggð má segja að það móti í flestu viðhorf Kristbergs til náttúru og heimsmyndar. Áferðarríkur og dimmleitur flötur verka hans verður eins og ævagamall og hálfgagnsær hamur eða hlífðarlag utan um lifandi innviði.

Kristbergur Ó. Pétursson (f. 1962) hefur helgað sig að mestu málaralist allt frá upphafi níunda áratugarins. Hann kom fyrst fram sem hluti af bylgju listmálara sem kenndir eru við nýja-málverkið, kraftmikið málverk sem ögraði og braut hefðir. Kristbergur hefur þróað list sína í átt að hinu óhlutbundna þar sem litaflæði og andrúm sækja í oft myrkar náttúrustemmur og drunga en myndefnið er oftar en ekki hrjóstrugt hraunlandslagið í og umhverfis heimabæ hans, Hafnarfjörð. Sérhver mynd er þolinmæðisverk, þar sem Kristbergur leggur hvert olíulagið ofan á annað í samræmi við áferð og birtu verkanna. Áferðarríkur og dimmleitur flöturinn verður eins og ævagamall og hálfgagnsær hamur eða hlífðarlag utan um lifandi innviði. Eftir margra áratuga samneyti við hraunið í heimabyggð má segja að það móti í flestu viðhorf hans til náttúru og heimsmyndar.