Hádegistónleikar

Kristján Jóhannsson tenór og Antonía Hevesí píanóleikari

Stórtenórinn Kristján Jóhannsson kemur fram ásamt Antoníu Hevesi píanóleikara á hádegistónleikum Hafnarborgar þriðjudaginn 11. nóvember kl. 12. Tónleikarnir bera yfirskriftina Mínir uppáhalds menn. Á efnisskránni verða aríur úr óperunni Tosca eftir G. Puccini og Don Carlo eftir G. Verdi.

Kristján Jóhannsson hefur skapað sér sess sem einn allra fremsti dramatíski tenór okkar tíma. Hann hóf söngnám um tvítugt við Tónlistarskóla Akureyrar hjá Sigurði Demetz og hélt síðan til Ítalíu til frekara náms í Conservatorio Nicolini í Piacenza hjá Ganni Poggi. Kristján hefur sungið öll helstu hlutverk ítölsku óperubókmenntanna og eru hlutverkin orðin á fimmta tug. Hann hefur sungið í öllum stærstu og vitrustu óperuhúsum heims til dæmis í Metropolitan-óperunni í New York, La Scala í Mílano, ríkisóperunni í Vín, Arena í Verona og Carnegie Hall í New York til að nefna aðeins örfá.

Antonía Hevesi píanóleikari hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg og valið með sér marga af fremstu söngvurum landsins. Hádegistónleikar eru haldnir fyrsta þriðjudag í mánuði.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund, þeir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Húsið er opnað kl. 11.30.