Síðdegistónleikar í Hafnarborg – ALDARFAR

Andrés Þór og Agnar Már

Á sjöundu tónleikum tónleikaraðarinnar Síðdegistónar í Hafnarborg, föstudaginn 7. maí nk. koma fram þeir Agnar Már Magnússon píanóleikari og Andrés Þór gítarleikari.  Þeir munu heiðra Jón Múla Árnason í tilefni af 100 ára afmæli hans með efniskrá tileinkaðri honum.  Tónleikarnir eru einnig útgáfutónleikar en þeir Andrés og Agnar hafa nýverið hljóðritað hljómdiskinn Aldarfar af þessu tilefni og munu leika úrval laga af diskinum.

Tónleikarnir hefjast klukkan 18:00 og standa yfir í um klukkustund. Vegna samkomutakmarkana eru færri tónleikasæti í boði en vanalega og fer skráning fram í síma 585-5790 á opnunartíma safnsins kl. 12-17.  Grímuskylda er á tónleikunum hjá gestum og tveggja metra fjarlægð skal höfð milli óskyldra aðila.

Tónleikunum verður einnig streymt beint úr Hafnarborg hér og á Facebook-síðu Hafnarborgar.

Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði og Hafnarfjarðarbæ.

Agnar Már Magnússon lauk burtfararprófi frá tónlistarskóla FÍH og Conservatorium van Amsterdam og hélt þaðan til New York í einkanám hjá djasspíanistanum Larry Goldings. Í New York komst Agnar í kynni við fleiri þekkta tónlistarmenn á sviði djassins en þau kynni leiddu m.a. til útgáfu fyrsta geisladisks hans sem ber nafnið 01. Frá því þá hefur Agnar ásamt öðrum tónlistarmönnum gefið af sér fjölda geisladiska til viðbótar. Agnar hefur margoft verið tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna og tvisvar hlotið þau. Agnar skrifaði heila dagskrá fyrir stórsveit Reykjavíkur 2010 og var hún flutt á tónleikum það ár. Tvö verkanna voru svo tekin upp og gefin út 2011 á disknum HAK. Sá diskur hlaut íslensku tónlistarverðlaunin sem djass diskur ársins. Agnar hefur starfað með heimsklassa djasstónlistarmönnum. Þar má nefna Bill Stewart, Ben Street, Seamus Blake, Chris Cheek, Ingrid Jensen, Frank Foster, Drew Gress, John Hollenbeck, Ari Hoenig og Perico Sambeat. Agnar á tónlistarferli sínum unnið til verðlauna svo sem „Outstanding Musicianship Award“ frá Berklee tónlistarháksólanum í Boston og komist í undanúrslit í Alþjóðlegu djass- píanókeppninni Martial Solal í París haustið 2002. Hann hefur útsett lög fyrir geislaplötur og söngleiki, starfað með Stórsveit Reykjavíkur í mörg ár, leikið á tónleikum hérlendis sem erlendis, verið píanóleikari og annast tónlistarstjórn í leikhúsi. Agnar sá meðal annars um tónlistina í Söngvaseið, Mary Poppins og Billy Elliot fyrir Borgarleikhúsið. Agnar starfar nú sem djasspíanisti en kennir jafnframt píanóleik og tónsmíðar við djassdeild Tónlistarskóla FÍH og MÍT en þar hefur hann starfað síðan 2001. Agnar var útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar 2010.

Andrés Þór lauk burtfararprófi frá tónlistarskóla FÍH, bachelorsgráðu og mastersgráðu frá Konunglega Tónlistarháskólanum í Den Haag í Hollandi þar sem hann lærði hjá Peter Niewerf, Wim Bronnenberg, Hein van der Geyn og John Ruocco auk þess að sækja masterclassa og workshop hjá hljóðfæraleikurum eins og Avishai Cohen, Kurt Rosenwinkel, Kenny Wheeler og John Abercrombie. Andrés flutti heim frá Hollandi árið 2004 og hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi síðan og gefið út fjölda geisladiska í eigin nafni og í ýmsum samstarfsverkefnum sem hafa margir hverjir hlotið mikið lof jafnt hérlendis sem erlendis. Andrés starfar einnig sem tónlistarkennari við tónlistarskóla FÍH, MÍT (menntaskóla í tónlist) og við tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Árið 2014 var Andrés útnefndur bæjarlistamaður Hafnarfjarðar, Andrés hlaut íslensku Tónlistarverðlaunin 2019 fyrir tónverk í flokki jazz og blús fyrir verkið Avi og hefur hlotið ýmsar viðurkenningar í formi tilnefninga til ýmissa verðlauna, hvatningarverðlaun og listamannalaun. Auk þess að hafa starfað með mörgum helstu tónlistarmönnum á Íslandi hefur Andrés komið fram á tónleikum með mörgum heimsþekktum jazztónlistarmönnum á borð við Michael Brecker, Ari Hoenig og Perico Sambeat. Andrés hefur komið fram víða á Íslandi og í Hollandi, Belgíu, Luxemburg, Frakklandi, Tékklandi, Slóvakíu, Noregi, Spáni, Bandaríkjunum og Þýskalandi.