Von

Birgir Snæbjörn Birgisson

Birgir Snæbjörn Birgisson hefur málað portrett af þingmönnunum 63 sem settust á þing eftir kosningarnar 2013 og einum að auki. Þarna birtast myndir af kjörnum fulltrúum sem sýna þá alla í sama ljósi, sem eina heild. Myndirnar benda á það sem þeir eiga sameiginlegt og það sem skilur þá að. Þessi heild, er táknmynd fyrir von okkar og þrár, óskir en líka ótta okkar. Þetta eru fulltrúar fólksins, samnefnari þjóðarinnar sem samfélagið treystir fyrir mikilvægum ákvörðunum og framkvæmdum.

Í verkum Birgis er að finna samfélagslega og pólitíska skírskotun. Þau krefjast þess af áhorfendanum að hann staldri við og rýni í verkin, bæði að leit að myndefninu sjálfu sem og inntakinu.

Birgir Snæbjörn Birgisson, fæddur 1966, stundaði nám við Myndlistar- og handíðaskóla Íslands á árunum 1986-89 og við fjöltæknideild École des Arts Décoratifs í Strassborg í Frakklandi frá 1991 – 93. Hann var búsettur um tíma í London þar sem hann starfaði að myndlist en býr og starfar nú í Reykjavík. Birgir hefur haldið meira en tuttugu einkasýningar og átt verk á ótal samsýningum bæði á Íslandi og erlendis. Birgir hefur lengi unnið með staðalímyndir um norrænt útlit. Dæmi um slík verk eru myndraðirnar Ljóshærðir hjúkrunarfræðingar, Ljóshærðar starfsstéttir, Ljóshærð ungfrú heimur 1951-, Auðmýkt, Ljóshærðir listamenn og Ljóshærðir tónlistarmenn.

Sýningarstjóri sýningarinnar er Mika Hannula en hann og Birgir Snæbjörn hafa unnið saman að ýmsum verkefnum síðan 2002. Fyrsta samstarfsverkefni þeirra var samsýningin Stop for a Moment — Painting as Narrative, Proje4L í Istanbul Museum of Contemporary Art. Þeir hafa líka unnið saman að verkefnum eins og Happy Together, samsýningu í Tallinn Art Hall (2009); Pleasure Principle, málverka samsýningu í Kling & Bang, Reykjavik (2011); og í Galleri Björkholmen, Stockholm (2012). Hannula sýningarstýrði einnig einkasýningu Birgis, Blonde Miss World 1951– í Listasafni Reykjavíkur 2007 sem og Ladies, Beautiful Ladies í Listasafni ASI og Helsinki Contemporary báðar árið 2014. Árið 2016 unnu þeir saman að sýningunni Let’s Get Physical í Leipzig.

 

Hér fyrir neðan er rafbók sem Birgir Snæbjörn og Mika gefa út í tengslum við sýninguna: