Elías B. Halldórsson

Verk úr safneign

Í Sverrissal eru nú til sýnis verk úr safneign Hafnarborgar eftir Elías B. Halldórsson (1930-2007). Árið 1993 gaf listamaðurinn Hafnarborg öll þau grafíkverk sem hann hafði unnið fram að því eða um 68 verk. Verkin vann hann flest frá árinu 1963 til loka tuttugustu aldar. Á ferli sínum vann Elías jöfnum höndum í olíu og grafík. Grafíkverkin eru að stærstum hluta tréristur sem sýna fjölbreytt myndefni, allt frá daglegu amstri til nautnafullra athafna og myndefni sem hann vann út frá ljóðum eða öðrum textum. Á sýningunni eru meðal annars verk sem hann vann við ljóð sonar síns Gyrðis Elíassonar.

Sýningin varpar ljósi á myndheim listamanns sem hóf feril sinn um miðja síðustu öld og fór ætíð eigin leiðir eða sigldi til hliðar við meginstraum myndlistarinnar. Þó málverk Elíasar hafi einkum verið óhlutbundin, liggur frásagnarheimurinn í grafíkverkunum í augum uppi, auk áhuga hans á bókmenntum. Sýningin bregður upp mynd af heimi sem oft virðist dimmur en er jafnframt glettinn, kraftmikill og ríkur af hugmyndum þegar kemur að útfærslu teikningarinnar í fast form tréristunnar. Listamanninum tekst sömuleiðis að koma til skila sérstöku andrúmslofti í þessu einfalda formi, þar sem efniviður og viðfangsefni skapa áhugaverðan heim.

Elías B. Halldórsson fæddist 1930 á Borgarfirði eystri. Hann stundaði nám við Myndlistar- og handíðaskólann og hélt svo erlendis í framhaldsnám – fyrst til Stuttgart í Þýskalandi og síðar til Kaupmannahafnar. Fyrstu einkasýningu sína hélt Elías í Bogasal Þjóðminjasafnsins árið 1960 en árið 1992 sýndi hann í fyrsta skipti í Hafnarborg.