Þinn staður – okkar bær

Opin vinnustofa um skipulag Hafnarfjarðar

Í Sverrissal Hafnarborgar verður rýnt í það sem er efst á baugi í framkvæmdum og skipulagsmálum í miðbæ Hafnarfjarðar og aðliggjandi svæðum, í samstarfi við Umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, auk Markaðsstofu Hafnarfjarðar. Maria Lisogorskaya frá Assemble vinnuhópnum, sem hlaut Turner-verðlaunin síðastliðið haust, stýrir sérstakri vinnustofu í tengslum við sýninguna, þar sem samþætting grasrótarstarfs og starfs skipulagsyfirvalda verður skoðuð sérstaklega. Sýningarstjóri er Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt.

Skipulag og hönnun umhverfis skiptir okkur öll miklu máli og getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir það mannlíf sem ætlað er að dafna á hverjum stað. Mikilvægt er að sem flestar raddir fái að hljóma í skipulagsvinnunni og tekið sé tillit til óska þeirra sem eiga að gæða hið byggða umhverfi lífi með nærveru sinni. Í þessari opnu vinnustofu gefst almenningi tækifæri til að ræða áherslur skipulagsyfirvalda og koma með ábendingar um það sem vel er gert og hvað má bæta.

Sýningin er hluti af HönnunarMars 2016.

Mars-stipill