Diktur

Ragnhildur Jóhanns

Laugardaginn 23. janúar 2016 opnar í Sverrissal Hafnarborgar sýning á nýjum verkum Ragnhildar Jóhanns. Ragnhildur leggur áherslu á tungumálið í listsköpun sinni þar sem hún leitast við að skapa sjónræn ljóð í formi skúlptúra, klippimynda, teikningar eða prents svo dæmi séu tekin.

Ragnhildur Jóhanns (f. 1977) býr og starfar í Reykjavík. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima sem og erlendis síðan hún útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2010. Hún situr í stjórn Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík og hefur komið að hinum ýmsu verkefnum tengdum listum svo sem sýningarstjórn, útgáfu bókverka auk þess sem hún er ritstjóri tímaritsins Endemi.