Hafnarfjörður

Verk úr safneign

Það er ekki bara Hafnfirðingum sem þykir Hafnarfjörður fallegur, heldur hefur samspil byggðarinnar og hraunsins í Hafnarfirði sömuleiðis heillað marga listmálara í gegnum tíðina. Í safneign Hafnarborgar eru fjölmörg verk sem tengjast bænum, þau elstu frá því snemma á 20. öld. Nú leitum við í þennan fjársjóð og gefum Hafnfirðingum og gestum þeirra tækifæri til að sjá hvernig staðarandi bæjarins birtist í myndlistarverkum frá því á síðustu öld. Hér má sjá bæinn í gegnum augu listamanna, þar á meðal helstu meistara íslenskrar myndlistar. Meðferð þeirra á viðfangsefninu er hefðbundin, fígúratíf nálgun þar sem þekkja má fyrirmyndina úr veruleikanum.

Hafnarfjörður er einstaklega myndrænn bær og náttúran umhverfis býður einnig upp á mikilfengleg sjónarhorn. Fyrir utan Reykjavík eru fáir þéttbýlisstaðir á Íslandi myndefni jafn margra listaverka og Hafnarfjörður. Verkin sem nú eru sýnd eru mörg úr stofngjöf hjónanna Ingibjargar Sigurjónsdóttur og Sverris Magnússonar sem ráku apótek í húsnæði Hafnarborgar um áratuga skeið. Hluti verkanna hefur undanfarin ár hangið í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarfjarðar.

Í safnkosti Hafnarborgar eru mun fleiri verk sem hafa bæinn að viðfangsefni en þau sem hér eru sýnd og mörg þeirra hanga í stofnunum bæjarins gestum þeirra og starfsmönnum til ánægju og yndisauka. Má þar nefna verk eftir hafnfirska listamenn á borð við Svein Björnsson og Gunnlaug Stefán Gíslason. Hafnarborg hefur á síðustu árum varpað ljósi á þá sýn sem listamenn samtímans hafa á bæinn í gegnum sýningar og gefst nú tækifæri til að rifja upp nálgun fyrri tíma á bæinn við fjörðinn og nágrenni hans.

Meðal listamanna sem eiga verk á sýningunni eru Nína Tryggvadóttir, Hörður Ágústsson, Jóhannes Kjarval, Jón Gunnarsson, Greta Björnsson og Jón Engilberts.


Leiðsögn um valin verk í Apóteki