Föstudaginn 10. október kl. 16 verður blásið til útgáfuhófs í Hafnarborg vegna endurútgáfu bókarinnar Rauða fisksins eftir Rúnu, Sigrúnu Guðjónsdóttur, sem kemur nú út hjá forlaginu Bókabeitunni, á íslensku og í enskri þýðingu höfundar. Umbrot og kápuvinnslu annaðist Blær Guðmundsdóttir.
Rauði fiskurinn kom fyrst út árið 1972 og síðan 1988 með þeim myndum sem þessi útgáfa skartar. Í sögunni renna texti og myndir áreynslulaust saman í eina heild sem er í senn spennandi og hrífandi. Hér gefst nýjum kynslóðum tækifæri til að kynnast þessari sígildu perlu íslenskra barnabókmennta.
Í bókinni segir frá Simba litla, sem er eini rauði fiskurinn í himinbláu hafi. Hann leggur upp í ferðalag í von um að finna fleiri fiska sem eru eins og hann. Lesandinn fylgir Simba litla um heit höf og köld – stundum er hann hræddur, stundum hrifinn, en alltaf vongóður um að ná markmiði sínu: að finna lítinn, rauðan leikfélaga og höndla hamingjuna.
Á löngum og fjölbreyttum ferli hefur myndsköpun Rúnu fundið sér farveg innan leirlistar, bókskreytinga, málverks og hönnunar. Hún hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar í gegnum tíðina, svo sem Fálkaorðuna og Íslensku hönnunarverðlaunin.
Léttar veitingar í boði og einnig verður bókin á sérstöku tilboði.
Verið öll hjartanlega velkomin.