Sunnudaginn 27. mars kl. 14 fer fram sýningarstjóraspjall um sýningu Hallgerðar Hallgrímsdóttur, Fáeinar vangaveltur um ljósmyndun – III. hluti, þar sem sýningarstjórinn Unnar Örn Auðarson segir frá listrænni sýn Hallgerðar og hugmyndafræði sýningarinnar.
Á sýningunni beinir Hallgerður sjónum sínum að ljósmyndatækninni sem miðli, þar sem hún skoðar bæði veruleikann í ljósmyndinni sem og veruleika ljósmyndarinnar sjálfrar. Verkin eru unnin með ólíka möguleika miðilsins í huga sem felast ekki bara í því að fanga viðfangsefnið í fallegri birtu, heldur líka öllu sem gerist í myndavélinni, í myrkraherberginu og, nú nýlega, í stafrænni vinnslu. Þá getur myndin farið í óteljandi ólíkar áttir á hverju stigi í ferlinu, enda er engin ein rétt leið til að búa til ljósmynd.
Sýningin er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands 2022. Sýningin hlaut styrk frá Myndstef.