Sýningarlok og leiðsögn með hönnuðum

Fyrirvari og Teikningar/skissur í leir og textíl

Sunnudaginn 26. maí eru síðustu forvöð að sjá sýningarnar Fyrirvara, eftir Brynjar Sigurðarson og Veroniku Sedlmair, og Teikningar/skissur í leir og textíl, eftir Kristínu Garðarsdóttur, í sýningarstjórn Brynhildar Pálsdóttur. Af því tilefni verður boðið upp á leiðsögn um sýningarnar kl. 14 með hönnuðunum, ásamt forstöðumanni Hafnarborgar, Ágústu Kristófersdóttur, og Búa Bjarmari Aðalsteinssyni, vöruhönnuði. Sýningarnar voru settar upp í tilefni af HönnunarMars í ár.

Sýning Brynjars Sigurðarsonar og Veroniku Sedlmair, Fyrirvari, miðar að því að þýða eða tengja saman „hluti“ í umhverfinu við hugmyndir og hugleiðingar að nýjum „hlutum“ en á sýningunni verður sköpunarferlið sjálft sýningarefnið. Vinna er séð sem eins konar röð möguleika og uppspretta fyrir nýjungar. Hljóð verður kveikja að hlut og ljósmynd spinnur af sér formæfingar í teikningu. Markmið sýningarinnar er að nýta og sýna öll þessi stig eða setja fram eins konar kortlagningu á tengingum milli mismunandi hluta og viðfangsefna, að myndgera ferli, hugmyndir og uppsprettur.

Sýning Kristínar Garðarsdóttur, Teikningar/skissur í leir og textíl, er óður til skissunnar, upphafsins og tilraunanna, þar sem hugmyndirnar eru frjálsar og flæða óhindrað úr einu í annað. Vinnan hefst með skissum og teikningum, sem síðan færast af blaði og yfir í önnur efni. Skissur sem voru unnar á áratugagamlan bókhaldspappír eru yfirfærðar í leir og textíl með ólíkum aðferðum, allt frá einföldum og frumstæðum yfir í hátæknilegar. Afrakstur þessa ferlis eru hlutir sem endurspegla handverk, þekkingu og tækni, þar sem notagildið er stundum skýrt en stundum óljóst.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.