Syngjandi jól – kórtónleikar í Hafnarborg

Laugardaginn 9. desember fyllist Hafnarborg af söng og hátíðaranda en þá koma saman ýmsir kórar úr Hafnarfirði og flytja jólalög fyrir gesti og gangandi. Syngjandi jól eru nú haldin í tuttugasta og fimmta sinn og eru tónleikarnir samstarfsverkefni Hafnarfjarðarbæjar, Jólaþorpsins og Hafnarborgar. Vinsamlegast athugið að sýningar safnsins verða lokaðar meðan á tónleikunum stendur.

Dagskrá

11:00-11:20 Leikskólinn Vesturkot
11:25-11:45 Leikskólinn Stekkjarás
11:50-12:10 Leikskólinn Smáralundur

12:40- 13:00 Leikskólinn Álfasteinn
13:05-13:25 Leikskólinn Arnarberg
13:30-13:50 Söngdeild Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
13:55-14:15 Skarshlíðarskóli og -leikskóli

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.