Syngjandi jól

Laugardaginn 7. desember fyllist Hafnarborg af söng og hátíðaranda, þegar fjölmargir kórar Hafnarfjarðar, skipaðir söngfólki á öllum aldri, koma saman og syngja falleg jólalög í upphafi aðventunnar. Syngjandi jól eru nú haldin í tuttugasta og þriðja sinn en tónleikarnir eru samstarfsverkefni Hafnarfjarðarbæjar, Jólaþorpsins og Hafnarborgar.

Dagskrá

10:00–10:20: Leikskólinn Stekkjarás
10:20–10:40: Leikskólinn Álfasteinn
10:40–11:00: Leikskólinn Arnarberg
11:00–11:20: Leikskólinn Bjarkalundur
11:20–11:40: Leikskólinn Hvammur
11:40–12:00: Hraunvallaleikskóli
12:00–12:20: Leikskólinn Norðurberg
12:20–12:40: Leikskólinn Smáralundur

Hlé

13:00–13:40: Barna- og unglingakór Hafnarfjarðarkirkju og Barnakór Ástjarnarkirkju
13:40–14:00: Gaflarakórinn
14:00–14:20: Kór Öldutúnsskóla
14:20–14:40: Litli kór Öldutúnsskóla
14:40–15:00: Kvennakór Hafnarfjarðar
15:00–15:20: Söngdeild Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
15:20–15:40: Kvennakórinn Rósir
15:40–16:00: Hrafnistukórinn

Vinsamlegast athugið að vegna tónleikanna verða sýningar Hafnarborgar lokaðar þennan dag.