Sönghátíð í Hafnarborg 2025 – dagskrá

Sönghátíð í Hafnarborg verður haldin í níunda sinn dagana 14.–29. júní 2025. Hátíðin er helguð klassískri tónlist, ljóða-, óperu- og kórsöng en þema Sönghátíðar í ár er „Eina sumarnótt“. Þá er markmið hátíðarinnar að heiðra klassíska söngtónlist og auka almenna þekkingu á list raddarinnar með tónleikum og námskeiðahaldi.

Á Sönghátíð í Hafnarborg í ár verður boðið upp á átta tónleika með framúrskarandi söngvurum og hljóðfæraleikurum, auk námskeiða fyrir börn og fullorðna, leika sem lærða. Stofnendur og stjórnendur Sönghátíðar eru Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran, og Francisco Javier Jáuregui, gítarleikari.


Dagskrá

Laugardaginn 14. júní kl. 17
Tíminn og vatnið
Rannveig Káradóttir, sópran
Peter Aisher, tenór
Hrönn Þráinsdóttir, píanóleikari

Sunnudaginn 15. júní kl. 17
Það var eitt kvöld
Mótettukórinn
Stefan Sand, stjórnandi

Laugardaginn 21. júní kl. 17
Íslensk einsöngslög í minningu Jónasar Ingimundarsonar
Kristinn Sigmundsson, bassi
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, sópran
Auður Gunnarsdóttir, sópran
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran
Hrönn Þráinsdóttir, píanóleikari
Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanóleikari
Francisco Javier Jáuregui, gítarleikari

Sunnudagur 22. júní kl. 17
Draumar úr norðri
Jóna G. Kolbrúnardóttir, sópran
Kristín Sveinsdóttir, mezzósópran
Unnsteinn Árnason, bassi
Eva Þyri Hilmarsdóttir, píanóleikari

Fimmtudaginn 26. júní kl. 20
Master class tónleikar
Nemendur Kristins Sigmundssonar á master class námskeiði syngja sönglög og aríur
Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanó

Föstudaginn 27. júní kl. 17
Fjölskyldutónleikar (ókeypis aðgangur)
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, sópran
Sigríður Ásta Olgeirsdóttir, sópran

Laugardaginn 28. júní kl. 17
One’s for Sorrow, Two’s for Joy
Trio Trëi frá Basel:
Maria Miribung, söngkona og sellóleikari
Gizem Şimşek, söngkona
Abélia Nordmann, söngkona

Sunnudaginn 29. júní kl. 17
Óperugala
Bryndís Guðjónsdóttir, sópran
Eggert Reginn Kjartansson, tenór
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran
Jóhann Kristinsson, baritón
Elena Postumi, píanóleikari


Nánari upplýsingar um Sönghátíð í Hafnarborg, dagskrá, námskeið og flytjendur, má finna á heimasíðu hátíðarinnar, www.songhatid.is. Þá fer miðasala fram í gegnum www.tix.is. Hátíðin nýtur stuðnings Hafnarfjarðarbæjar og Tónlistarsjóðs.