skart:gripur – leiðsögn og sýningarlok

Sunnudaginn 26. maí kl. 14 verður boðið upp á leiðsögn um sýninguna skart:gripur ásamt sýningarstjóranum Brynhildi Pálsdóttur og hönnuðunum Hildi Ýr Jónsdóttur, Helgu Mogensen og Kjartani Erni Kjartanssyni (Orr).

Hildur Ýr, Helga og Kjartan eru meðal þátttakenda í sýningunni en þar getur að líta gripi eftir hóp níu gullsmiða, skartgripahönnuða og listamanna sem varpa ljósi á skartið í samtíma okkar.

Auk þeirra taka þátt í sýningunni þau Anna María Pitt, Arna Gná Gunnarsdóttir, Ágústa Arnardóttir, James Merry, Katla Karlsdóttir og Marta Staworowska en sýningin er sett upp í tengslum við HönnunarMars 2024.

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.