Sjónarhorn – verk úr safneign

Hafnarborg leggur áherslu á að gefa öllum tækifæri til að kynnast menningu og listum og býður upp á leiðsagnir fyrir alla aldurshópa. Sjónarhorn eru fræðslustundir ætlaðar eldra fólki, sem hefur áhuga á menningu og listum, til að fræðast um starfsemi Hafnarborgar, yfirstandandi sýningar eða einstök verk úr safneign.

Á næstu fræðslustund, miðvikudaginn 13. apríl kl. 14, verður fjallað ítarlega um valin verk úr safneign Hafnarborgar, sem telur nú tæplega 1600 verk, unnin með fjölbreyttum aðferðum. Þar má meðal annars finna málverk, teikningar, þrívíð verk og vídeóverk, auk þess sem safnið hefur umsjón með útilistaverkum Hafnarfjarðar.

Hægt er að skrá sig í síma 585 5790 eða með því að senda póst á netfangið [email protected]. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti í Hafnarborg að lokinni dagskrá. Aðgangur er ókeypis.


Fræðslustundir framundan:

11. maí kl. 14
HönnunarMars – Tinna Gunnarsdóttir

Leiðsögn um sýningu Tinnu Gunnarsdóttur, Snert á landslagi. Verkin á sýningunni eru hluti af yfirstandandi doktorsverkefni Tinnu sem byggir á áralangri rannsókn hennar í Héðinsfirði, þar sem hún kannar tengsl manns og landslags. Sýningin er hluti af HönnunarMars 2022.