Síðdegistónar – Svavar Knútur & hljómsveit

Svavar Knútur, Ingibjörg Elsa Turchi, Svanhildur Lóa Bergsteinsdóttir og Andrés Þór

Á fimmtu tónleikum tónleikaraðarinnar Síðdegistóna í Hafnarborg föstudaginn 5. febrúar kemur fram söngvaskáldið Svavar Knútur ásamt hljómsveit, skipaðri þeim Ingibjörgu Elsu Turchi, á bassa, Svanhildi Lóu Bergsveinsdóttur, á trommum, og Andrési Þór, á gítar. Á efniskránni verður sannkölluð söngvaskáldaveisla en hljómsveitin mun leika mörg af helstu lögum Svavars, sem hafa notið mikilla vinsælda undanfarið: lög af plötunum Ölduslóð, Brot, Ahoy! Side A og Bil. Tónleikarnir hefjast kl. 18 og standa yfir í um klukkustund.

Vegna tilslakana á fjöldatakmörkunum getum við loks opnað fyrir áhorfendur í takmörkuðum mæli. Gestir eru beðnir um að panta sér miða í síma 585 5790 á opnunartíma safnsins. Aðgangur er ókeypis.

Grímuskylda er á tónleikunum hjá gestum og tveggja metra fjarlægð skal höfð milli óskildra aðila.

Tónleikunum verður áfram streymt beint á facebook og í gegnum heimasíðu safnsins svo að sem flestir geti notið flutningsins.

Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði og Hafnarfjarðarbæ.

Slóð á beint streymi fyrir tónleikana má finna hér en einnig er hægt að fylgjast með tónleikunum í gegnum spilarann hér að neðan.

Svavar Knútur söngvaskáld hefur undanfarin ár skapað sér sess meðal fremstu söngvara og lagahöfunda Íslands. Með einlægni og látleysi að vopni hefur Svavar Knútur náð að skapa sér sérstöðu jafnt fyrir frumsamin lög sín og túlkun á sígildum íslenskum sönglögum. Þá hefur hann sótt sífellt meiri innblástur í íslenskar sögur, tungumálið, samfélag og náttúru í lagasmíðum sínum. Svavar Knútur er þekktur fyrir að blanda saman húmor og alvarlegum málefnum, að draga áhorfendur sína í gegnum hláturrokur og táradali en sá um leið fræjum vonar og æðruleysis.

Ingibjörg Elsa Turchi, bassaleikari og tónskáld, hefur verið afar sýnileg í íslensku tónlistarlífi síðustu ár, þar sem hún hefur komið fram með mörgum af ástsælustu listamönnum þjóðarinnar, svo sem Emilíönu Torrini, Bubba Morthens, Stuðmönnum og Benna Hemm Hemm. Hún hefur einnig starfað í hljómsveit Þjóðleikhússins og í verki Ragnars Kjartanssonar, Konu í e-moll. Þar að auki hefur Ingibjörg komið reglulega fram undir eigin nafni, ásamt hljómsveit, þar sem hún kannar hljóðheim rafmagnsbassans en hljómsveit hennar var valin til að spila á Nordic Jazz Comets 2020 í Helsinki. Hún gaf út sína fyrstu sólóplötu, Wood/work árið 2017 og kom hennar fyrsta plata í fullri lengd, Meliae, út í júlí í fyrra en hún hlaut Kraumsverðlaunin fyrir hana í desember síðastliðnum. Ingibjörg er með BA gráðu í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands, auk þess sem hún lagði stund á rafbassa í Tónlistarskóla FÍH og hefur starfað hjá félagasamtökunum Stelpur rokka! á Íslandi frá upphafi. Um þessar mundir vinnur hún að sinni þriðju sólóplötu, jafnframt því að semja verk fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands á vegum Ung-Yrkju verkefnisins.

Svanhildur Lóa Bergsteinsdóttir, Lóa, er 23 ára trommu-og slagverksleikari. Hún útskrifaðist með framhaldspróf í klassískum slagverksleik frá MÍT árið 2017 og spilar í mörgum mismunandi verkefnum, bæði á trommusett og annars konar slagverk. Sem dæmi um þau verkefni sem hún hefur tekið þátt í má nefna Kardemommubæinn í Þjóðleikhúsinu, Cell7, Raven, Salóme Katrínu, Kammersveitina Elju og fleiri samspilshópa. Þá leikur Lóa jafnt jazz, popp og klassíska tónlist, ásamt því að kenna slagverk í Skólahljómsveit vestur- og miðbæjar.

Andrés Þór lauk burtfararprófi frá Tónlistarskóla FÍH 1999, BA gráðu í jazzgítarleik og kennslufræðum frá Konunglega tónlistarháskólanum í Haag í Hollandi 2004 og MA gráðu frá sama skóla árið 2006. Andrés hóf að starfa sem hljóðfæraleikari 1994 á dansleikjum en síðari ár hefur hann verið virkur í íslensku tónlistarlífi með eigin jazzhljómsveitir, auk þess að starfa sem hljóðfæraleikari í hljóðverum, tónleikauppfærslum og í leiksýningum. Andrés hefur gefið út fjölmarga hljómdiska í eigin nafni sem og í samstarfi við aðra. Andrés hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2019 fyrir tónverk ársins í jazz og blúsflokki og var útnefndur bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2014.