Síðdegistónar – Marína Ósk syngur Chet Baker

Á næstu tónleikum tóleikaraðarinnar Síðdegistóna í Hafnarborg, föstudaginn 29. október kl. 18, mun söngkonan Marína Ósk Þórólfsdóttir koma fram ásamt þeim Þorgrími Jónssyni, kontrabassaleikara, og Andrési Þór Gunnlaugssyni, gítarleikara. Á tónleikunum munu þau heiðra söngvarann og trompetleikarann Chet Baker og leika ýmis lög tengd honum.

Marína Ósk, söngkona og lagahöfundur, hefur stimplað sig rækilega inn í íslensku djasssenuna síðustu árin og komið fram á öllum helstu djasstónleikastöðum landsins, m.a. á Jazzhátíð Reykjavíkur 2021, 2020 og 2018. Hún lauk meistaragráðu í djasssöng frá Konunglega tónlistarháskólanum í Stokkhólmi vorið 2021 og sneri meistararitgerð hennar að því að kafa djúpt í listrænt eðli trompetleikarans og söngvarans Chet Baker. Marína Ósk sendi frá sér sína fyrstu sólóplötu, Athvarf, árið 2019 og hlaut sú plata tvær tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2020. Hún vinnur nú að annarri plötu sinni, auk þess sem hún kemur fram sem söngkona og kennir söng.

Þorgrímur Jónsson hefur starfað sem tónlistarmaður í tæp tuttugu ár, þar sem hann hefur tekið þátt í afar fjölbreytilegum verkefnum, starfað með flestu af fremsta tónlistarfólki landsins, leikið inn á ríflega þrjátíu hljómplötur, leikið með Stórsveit Reykjavíkur, spilað í leikhúsum og komið fram í útvarpi og sjónvarpi, ásamt því að leika á flestum af þeim fjölmörgu tónlistarhátíðum sem eru starfandi á Íslandi, t.d. Jazz- og Listahátíð Reykjavíkur, sem og Iceland Airwaves. Fyrsta sólóplata Þorgríms, sem ber heitið Constant Movement, kom út árið 2016 en platan hlaut tvenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum í flokki djass- og blústónlistar sem plata ársins og Þorgrímur sem lagahöfundur ársins. Þorgrímur er meðlimur í ýmsum hljómsveitum á borð við Tríó Sunnu Gunnlaugs, Jónsson & More og Skuggamyndum frá Býsans. Meðfram þessu hefur Þorgrímur starfað við tónlistarkennslu síðastliðin fimmtán ár, til að mynda við tónskóla Garðabæjar, TSDK, FÍH, MÍT og nú við tónlistardeild LHÍ.

Andrés Þór lauk burtfararprófi frá tónlistarskóla FÍH, bakkalárgráðu og meistaragráðu frá Konunglega Tónlistarháskólanum í Den Haag í Hollandi. Andrés flutti heim frá Hollandi árið 2004 og hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi síðan, gefið út fjölda platna í eigin nafni og í ýmsum samstarfsverkefnum sem hafa hlotið mikið lof jafnt hérlendis sem erlendis. Andrés starfar einnig sem tónlistarkennari við tónlistarskóla FÍH, Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og sem stundakennari við Listaháskóla Íslands.  Árið 2014 var Andrés útnefndur bæjarlistamaður Hafnarfjarðar og hefur hann hlotið ýmsar viðurkenningar í formi tilnefninga til ýmissa verðlauna, hvatningarverðlaun og listamannalaun. Auk þess að hafa starfað með mörgum helstu tónlistarmönnum landsins hefur Andrés komið fram á tónleikum með mörgum heimsþekktum djasstónlistarmönnum á borð við Michael Brecker, Ari Hoenig og Perico Sambeat. Andrés hefur komið fram víða á Íslandi og í Hollandi, Belgíu, Lúxemborg, Frakklandi, Tékklandi, Slóvakíu, Noregi, Spáni, Bandaríkjunum og Þýskalandi.

Tónleikaröðin er styrkt af Tónlistarsjóði Rannís, Hafnarfjarðarbæ og menningarsjóði FÍH.

Tónleikarnir standa yfir í um klukkustund og er aðgangur ókeypis.