Síðdegistónar – Margrét Eir ásamt hljómsveit

Föstudaginn 18. október kl. 18 mun söngkonan Margrét Eir koma fram á næstu Síðdegistónum í Hafnarborg ásamt þeim Þorgrími Jónssyni, kontrabassaleikara, og Andrési Þór, gítarleikara. Á efniskránni verður fjölbreytt úrval uppáhaldslaga tríósins eftir Joni Mitchell og ýmsa fleiri.

Tónleikarnir standa í um klukkustund og er aðgangur ókeypis.

Tónleikaröðin er styrkt af Tónlistarsjóði Rannís, Menningarsjóði FÍH og Hafnarfjarðarbæ.