Síðdegistónar – djasskvartettinn KuVenda

Föstudaginn 14. október kl. 18 mun djasskvartettinn KuVenda koma fram á öðrum tónleikum Síðdegistóna í Hafnarborg í vetur en hljómsveitin er fjölþjóðlegt samstarf milli íslenska gítarleikarans Andrésar Þórs, slóvakíska víbrafónleikarans Miro Herak, hollenska trommuleikarans Vinsent Planjer og ítalska bassaleikarans Andrea Caruso. Á efniskrá tónleikanna verða lög eftir meðlimi kvartettsins, meðal annars af EP-plötu þeirra Step One sem kom út á síðasta ári, í bland við tökulög úr smiðju ýmissa samtímadjasstónskálda.

Kvartettinn var stofnaður í ágúst 2019 og gerir út frá Hollandi en hljómsveitin kom fyrst fram á djasshátíðinni Jazz in de Gracht í hollensku borginni Haag sama ár. Þá hafa Andrés, Miro og Vinsent allir starfað lengi saman að ýmsum verkefnum frá því þeir voru saman við nám í Konunglega konservatoríinu í Haag í kringum 2000 en fyrir þetta verkefni fengu þeir sér til fulltingis ítalska bassaleikarann Andrea Caruso.

Tónlist KuVenda blandar saman hinum opna hljóm evrópska nýdjassins, lýrískum hljóðmyndum norrænnar djasstónlistar og hrynkrafti byggðum á breiðum áhrifum ýmiss konar samtímatónlistar og tónlistarstíla. Fyrsta útgáfa KuVenda er EP-platan Step One sem er aðgengilega á öllum streymisveitum.

Tónleikarnir standa í um klukkustund og aðgangur er ókeypis.

Tónleikaröðin er styrkt af Hafnarfjarðarbæ og Menningarsjóð FÍH.