Síðdegistónar – ASA Tríó + Jóel Pálsson

Föstudaginn 14. apríl kl. 18 mun ASA Tríó koma fram á Síðdegistónum í Hafnarborg ásamt saxófónleikaranum Jóel Pálssyni en saman munu þeir leika efni af plötu sem þeir félagar gáfu út í fyrra. Platan nefnist Another Time og var hljóðrituð snemma árið 2020 þegar allt lá í dvala í samfélaginu og þess má geta að nýverið hlaut platan Íslensku tónlistarverðlaunin sem hljómplata ársins 2022 í flokki djasstónlistar. Platan samanstendur af verkum eftir alla fjóra meðlimi hljómsveitarinnar sem eru sérstaklega samin fyrir þetta verkefni. Áhrifin koma víðs vegar að, allt frá indí-skotnum, lagrænum ópusum, ágengum módalverkum og fönk-blúsuðum, búgalú-skotnum lögum til meginstefnudjasstónsmíða með miðjarðarhafsblæ og ýmislegt þar á milli.

ASA Tríó hefur verið starfrækt frá árinu 2005 en sveitin hefur gefið út tvær hljómplötur í eigin nafni, auk þess að gefa út nokkrar hljómleikaútgáfur sem eru aðgengilegar á stafrænu formi á heimasíðu tríósins. Tríóið skipa þeir Andrés Þór, gítarleikari, Agnar Már Magnússon, orgel- og hljómborðsleikari, og Scott McLemore, trommuleikari. Þeim til fulltingis er svo saxafónleikarinn Jóel Pálsson sem er tónlistaráhugafólki að góðu kunnur. Jóel hefur verið atkvæðamikill í íslensku tónlistarlífi um árabil og hefur gefið út fjölmargar hljómplötur sem hafa fengið góðar viðtökur og hlotið fjölda viðurkenninga.

Tónleikarnir standa í um klukkustund og er aðgangur ókeypis.

Tónleikaröðin er styrkt af Hafnarfjarðarbæ, Tónlistarsjóði Rannís og Menningarsjóði FÍH.