Pétur Thomsen: Landnám – samtal höfundar og Jóns B. K. Ransu

Sunnudaginn 16. febrúar kl. 15 bjóðum við ykkur velkomin á spjall um sýningu Péturs ThomsenLandnám, í tilefni af síðasta sýningardegi. Þá mun myndlistarmaðurinn Jón B. K. Ransu eiga samtal við Pétur um sýninguna og nálgun hans við viðfangsefnið. Verkin sem sýnd eru tilheyra yfirstandandi seríu Péturs, sem ber sama titil, en þá er þetta í fyrsta sinn sem Pétur heldur sýningu á verkum úr seríunni undir þeim titli.

Landnám er langtíma-ljósmyndaverk þar sem Pétur rannsakar nýtingu manna á landi og hvaða áhrif hún hefur á náttúruna. Listamaðurinn ljósmyndar námur, vegi, hraun, skóga, læki og ræktarlönd í skjóli myrkurs og notast við flass til að afmarka viðfangsefni sín. Myndirnar verða þannig vitnisburður um umhverfingu manna á náttúrunni sem hefur undanfarnar aldir verið svo umfangsmikil að margir telja athafnir mannsins hafa gangsett nýtt jarðsögulegt tímabil, mannöldina: tímabil sem stafar meðal annars af loftslagsbreytingum og hlýnun jarðar.

Pétur Thomsen (f. 1973) lauk MFA-prófi í ljósmyndun frá École nationale supérieure de la photographie í Arles, Frakklandi, árið 2004. Áður stundaði hann nám í frönsku, listasögu og fornleifafræði við Université Paul Valéry í Montpellier og listljósmyndun við École supérieure des métiers artistiques í sömu borg. Pétur hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar en árið 2004 hlaut hann til að mynda verðlaun LVMH-samsteypunnar sem þá voru veitt ungum listamanni í 10. sinn. Hann var svo útnefndur af Musée de L’Élysée í Lausanne sem einn af 50 ljósmyndurum sem líklegir væru til að setja mark sitt á ljósmyndasögu framtíðarinnar í verkefninu reGeneration: 50 Photographers of Tomorrow.

Ókeypis aðgangur – verið öll velkomin.