Í sumar er boðið uppá kvöldgöngur í Hafnarfirði með leiðsögn alla fimmtudaga kl. 20.
Í síðustu göngu sumarsins, fimmtudaginn 27. ágúst kl. 20 mun Árni Guðmundsson félagsuppeldisfræðingur leiða göngu um slóðir unglingamenningar í Hafnarfirði.
Gengið verður frá Hafnarborg.