Menningarganga – Hús í hrauninu

Miðvikudaginn 1. júní kl. 20 mun Jónatan Garðarsson leiða göngu að fyrsta og þriðja húsi Hreins Friðfinnssonar. Gengið verður frá Gerðinu, sunnan megin við Álverið (sjá kort hér að neðan). Athugið að gangan mun taka um þrjár klukkustundir.

„Síðsumars árið 2011 mátti greina útlínur húss á ferðalagi um hraunið sunnan Hafnarfjarðar. Húsið sem minnti á draug eða skugga í landslaginu, fór hægt yfir. Áfangastaðurinn var ker á fáförnum stað í hrauninu. Spýtur og brak höfðu nýverið verið hreinsuð af vikurhóli ofan í kerinu og á þennan hól var húsið sett. Þarna stóð það og áhorfandann gat allt eins verið að dreyma. Hér vitjaði hann minninga um eitthvað sem var eða hugboð um eitthvað sem verður.“

Úr formála eftir Ólöfu K. Sigurðardóttur úr bókinni Fyrsta hús / Annað hús / Þriðja hús, sem gefin var út af Hafnarborg árið 2012.

kort

Hafnarfjarðarbær býður upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld í sumar. Flestar göngurnar taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Menningar- og heilsugöngur eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.


Menningar- og heilsugöngur framundan

8. júní kl. 20
Álfaganga
Silja Gunnarsdóttir, eigandi alfar.is, leiðir göngu um álfaslóðir og segir sögu álfa, dverga og huldufólks á leiðinni. Gengið frá Ráðhúsi Hafnarfjarðar að Strandgötu 6.

15. júní kl. 17
Barnaganga
Hildigunnur Sigvaldadóttir leiðir yngri kynslóðina í ævintýralegri göngu með listsköpun. Gengið frá Bókasafni Hafnarfjarðar að Hellisgerði og til baka.

22. júní kl. 18
Söguganga um náttúruna
Jónatan Garðarson leiðir göngu upp á Seldalsháls að Stórhöfða. Gengið frá bílastæðinu vestan megin við Hvaleyrarvatn (nær Völlum).

29. júní kl. 20
Kringum hamarinn
Ólafur Þ. Harðarson leiðir göngu í kringum Hamarinn og fjallar um sögu skóla og íþrótta á svæðinu. Gengið frá Flensborgarskóla.

6. júlí kl. 20
Ha ha um Hafnarfjörð
Einar Skúlason leiðir gesti og gangandi um skemmtilegar slóðir í Suðurbæ Hafnarfjarðar og reitir af sér valda Hafnarfjarðarbrandara á leiðinni. Gengið frá Firði verslunarmiðstöð

13. júlí kl. 20
Hugleiðing um álfa
Bryndís Björgvisdóttir, rithöfundur, sagn- og þjóðfræðingur, og Aldís Arnardóttir, forstöðumaður Hafnarborgar, leiða göngu þar sem velt er upp hugleiðingum um álfa og verur í klettum. Gengið frá Hafnarborg og gangan endar svo með leiðsögn um sýningu Gunnars Arnar Gunnarssonar í Hafnarborg.

20. júlí kl. 17
Þessir gömlu góðu
Janus Guðlaugsson, eigandi Janusar heilsueflingar, rifjar upp, kennir og leiðir stórfjölskylduna alla í gegnum þessa gömlu góðu útileiki sem voru vinsælir fyrir ekki svo mörgum árum síðan. Tilvalin skemmtun fyrir alla í fjölskyldunni. Gengið frá Víðistaðakirkju.

27. júlí kl. 20
Æskuslóðir í Suðurbænum
Leifur Helgason leiðir göngu um æskuslóðir sínar í Suðurbænum. Gengið frá Gúttó.

3. ágúst kl. 17
Buslganga að Arnarvatni
Davíð Arnar Stefánsson leiðir göngu að Arnarvatni. Ef veðrið er gott er kjörið að taka með sér teppi og nesti og busla í vatninu. Gengið frá bílastæðinu við Seltún, Krýsuvík.

10. ágúst kl. 18
Villtar matjurtir í Hafnarfirði
Mervi Orvokki Luoma leiðir gesti um Hafnarfjörð í leit að gómsætum, villtum jurtum. Gengið frá Bókasafni Hafnarfjarðar

17. ágúst kl. 20
Umhverfis eitt Klifsholtanna
Valgerður M. Hróðmarsdóttir leiðir göngu umhverfis eitt Klifsholtanna, að Lambgjá og Smyrlabúð með viðkomu í gróðurreit Rótarý og Lionsklúbbs Hafnarfjarðar. Gengið frá bílastæðinu við Helgafell.

24. ágúst kl. 17
Kyrrðarganga við Stórhöfða
Guðbjörg Björnsdóttir og Ingibjörg Valgeirsdóttir, eigendur fræðslufyrirtækisins Saga Story House, leiða kyrrðargöngu við Stórhöfða. Um er að ræða rólega göngu með leiddum núvitundaræfingum þar sem gengið er að hluta til í þögn. Gengið frá bílastæðinu vestan megin við Hvaleyrarvatn (nær Völlum).

31. ágúst kl. 20
Sagan, safnið og gamli bærinn
Björn Pétursson, bæjarminjavörður Hafnarfjarðar, leiðir göngu um gamla bæinn. Gengið frá Pakkhúsi Byggðasafnsins.