Menningarganga – Hreinn Friðfinnsson og hraunið

Miðvikudaginn 9. júlí kl. 20 mun myndlistarmaðurinn Styrmir Örn Guðmundsson leiða göngu að fyrsta og þriðja húsinu eftir Hrein Friðfinnsson. Farið verður eftir gamla Keflavíkurveginum gegnum hraunið að Smalaskálakeri, þar sem listaverk Hreins, Þriðja hús, hefur staðið síðan 2011. Um húsið sjálft hafði listamaðurinn sjálfur þetta að segja:

„Fyrsta húsið stóð á hólnum dálítið gott með sig og yfirlýsingaglatt, en það sama er ekki að segja um þriðja húsið. Þó það sé titlað Þriðja hús vaknar strax spurningin: Er þetta hús? Það segist vera hús, en samt sem áður koma spurningar upp í hugann, enda er ekkert úti eða inni lengur. Þó það sé án útveggja og veiti ekkert skjól í hefðbundnum skilningi má vel vera að það veiti skjól fyrir einhverju öðru, sem er algerlega huglægt. Þarna er aðeins spurt spurninga, en ekki gefin yfirlýsing um að þetta þýði eitt eða annað (úr bókinni Fyrsta hús / Annað hús / Þriðja hús, 2012, Hafnarborg).“

Styrmir Örn starfaði um árabil sem aðstoðarmaður Hreins Friðfinnssonar og mun leitast við að veita innsýn í sköpunarferli listamannsins og merkingu verksins á meðan gengið er um landslagið þar sem það felur sig. Um er að ræða einstaka upplifun sem höfðar jafnt til listáhugafólks sem og þeirra sem vilja sjá landslag og list í nýju ljósi.

Gengið verður frá bílastæði við Straumsvík, frá Gerði við Barböruveg (sjá hér). Þá mælum við jafnvel með því að fólk sameinist í bíla fyrir gönguna, þar sem framkvæmdir eru í gangi á svæðinu. Reikna má með að gangan taki um eða yfir tvær klukkustundir.

Hafnarfjarðarbær býður upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld í sumar. Flestar göngurnar taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Menningar- og heilsugöngur eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.