Hafnarborg býður grunnskólabörnum í Hafnarfirði að koma og taka þátt í skapandi listasmiðjum á vegum safnsins í vetrarfríi dagana 20. og 21. október. Smiðjurnar eru opnar öllum börnum og fjölskyldum þeirra sem vilja láta sköpunargleðina flæða og njóta þess að vinna með fjölbreyttan efnivið. Smiðjurnar verða hvor með sínu sniðinu, svo velkomið er að taka þátt annan eða báða dagana.
Hrekkjavöku-taupokasmiðja
Mánudagur 20. október kl. 13-15
Í þessari skapandi smiðju fá þátttakendur tækifæri til að leika sér með litina og hanna sinn eigin taupoka. Pokann má skreyta, teikna á eða mála eftir eigin hugmyndum og getur hann svo nýst á hrekkjavökunni – þegar farið er út á stjá til að safna gotteríi eða gera grikk – eða í öðrum haustverkefnum.
Hinn fjöltyngdi skógarskóli (Escola florestal)
Þriðjudagur 21. október kl. 13-15
Listamennirnir Fernanda Fajardo og Anne Rombach leiða listasmiðju fyrir fjölskyldu á íslensku, portúgölsku, spænsku, ensku og þýsku. Þátttakendur sækja innblástur í skóginn og skapa verur úr laufum, greinum og öðrum náttúrulegum efnivið í anda haustsins. Smiðjan er haldin í tengslum við viðburðadagskrá safnsins Á mínu máli.
Smiðjurnar fara fram í Apótekinu á fyrstu hæð safnsins en mælst er til að börn mæti í fylgd fullorðinna. Eins og venjulega er þátttaka í listasmiðjum gestum að kostnaðarlausu, líkt og aðgangur að sýningum safnsins. Verið hjartanlega velkomin.