Listasmiðjur í vetrarfríi – klippimyndir og leir

Hafnarborg býður grunnskólabörnum í vetrarfríi að koma og taka þátt í skemmtilegum og skapandi listasmiðjum á vegum safnsins dagana 22. og 23. febrúar. Smiðjurnar verða hvor með sínu sniðinu, svo velkomið er að taka þátt annan eða báða dagana.

Fjöltyngd klippimyndasmiðja
Fimmtudaginn 22. febrúar kl. 13-15
Myndlistarmennirnir Lukas Bury og Unnur Mjöll Leifsdóttir munu leiða ‏smiðju þ‏ar sem unnar verða litríkar klippimyndir úr pappír. Í smiðjunni fá þátttakendur að kynnast töfraheimi lita og forma. Hægt verður að skoða s‎‎ýningar safnsins til að leita að hugmyndum fyrir sína eigin listsköpun. Leiðbeinendur smiðjunnar tala íslensku, ensku og pólsku.

Leir, sköpun og mótun
Föstudaginn 23. febrúar kl. 13-15
Þóra Breiðfjörð, hönnuður, verður með smiðju þar sem unnið verður með leir á skapandi hátt. Leitað verður innblásturs á sýningu Jónínu Guðnadóttur, Flæðarmáli, sem nú stendur yfir í safninu. Þátttakendur fá jarðleir í þremur mismunandi litum, fá að kynnast efninu og gera tilraunir með mótun leirsins. Listaverkin sem gestir skapa verða í framhaldinu brennd í leirofni og hægt verður að nálgast þau síðar í afgreiðslu Hafnarborgar.

Smiðjurnar fara fram í Apótekinu á fyrstu hæð safnsins en mælst er til að börn mæti í fylgd fullorðinna. Eins og venjulega er þátttaka í listasmiðjum gestum að kostnaðarlausu, líkt og aðgangur að sýningum safnsins. Verið hjartanlega velkomin.