Hafnarborg býður börnum á grunnskólaaldri að koma og taka þátt í skemmtilegum og skapandi listasmiðjum í vetrarfríi 20. og 21. febrúar í tengslum við sýninguna Þögult vor, sem nú stendur yfir í safninu. Smiðjurnar verða hvor með sínu sniðinu, svo velkomið er að taka þátt annan eða báða dagana.
20. febrúar kl. 13–15
Í fyrri smiðjunni verður unnið með sjálft ljósið, þar sem gerðar verða tilraunir með ólík form og myndir á ljósnæman pappír, undir leiðsögn Lilju Birgisdóttur, myndlistarmanns og þátttakanda í sýningunni Þöglu vori, og Ólafar Bjarnadóttur, starfsmanns Hafnarborgar.
Smiðjan mun fara fram í Apótekssalnum á fyrstu hæð safnsins og geta börn mætt ásamt foreldrum eða forráðamönnum. Eins og venjulega er þátttaka í smiðjum og aðgangur að sýningum safnsins gestum að kostnaðarlausu.