Listamannsspjall – Þór Sigurþórsson

Laugardaginn 10. febrúar kl. 14 mun Þór Sigurþórsson, myndlistarmaður, taka á móti gestum og spjalla um sýninguna Vísa, þar sem getur að líta ný verk eftir listamanninn.

Segja má að í verkum Þórs megi finna viss leiðarstef – vísa – sem áhorfandanum er látið eftir að sjá hvert leiða hann. Þá vinnur listamaðurinn gjarnan með fundna hluti eða hversdagslega hluti sem hann setur í nýtt samhengi svo að óvæntar tengingar myndast þvert á tíma og rúm. Efniviðurinn inniheldur leifar af tíma og vekur upp vangaveltur um endurtekningu, hringrás og gang tímans. Skilningi okkar á hversdagslegum hlutum er þannig snúið á hvolf og okkur birtast naum en næm myndljóð, þar sem reynsla, skynjun og úrvinnsla vísa til hverfuls heims á mörkum ræðni og óræðni.

Þór Sigurþórsson (f. 1977) lauk MFA-gráðu í myndlist frá School of Visual Arts í New York árið 2008. Hann hafði áður lokið BA-prófi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2002 og þá hefur hann einnig stundað nám við Academie der bildenden Künste í Vínarborg. Þór hefur tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis, til að mynda í Ásmundarsafni og útisýningaröð Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík, Hjólinu. Hann hefur einnig haldið ýmsar einkasýningar, meðal annars í Y Gallery, Hverfisgalleríi og Harbinger. Árið 2015 hlaut Þór styrk úr sjóði Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur.

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.