Samfélag skynjandi vera – listamanna- og sýningarstjóraspjall

Sunnudaginn 24. október kl. 14 verður boðið upp á leiðsögn um sýninguna Samfélag skynjandi vera. Forstöðumaður Hafnarborgar, Aldís Arnardóttir, ásamt öðrum sýningarstjóra sýningarinnar, Hubert Gromny, mun halda utan um leiðsögnina. Hubert segir frá sýningarhugmyndinni sem og sínu eigin verki ásamt listamönnunum Melanie Ubaldo og Gígju Jónsdóttur, sem einnig eiga verk á sýningunni.

Á sýningunni er leitast við að skoða tengingu okkar við heiminn í nýju ljósi, með því að líta á okkur öll sem eitt stórt samfélag skynjandi vera. Þá má nálgast ólík viðfangsefni á nýjan hátt, hvort sem við eigum við samband manns og náttúru, manns og menningar eða samband mannsins við sjálfan sig. Hugtakið skynjandi vera leysir okkur þannig undan viðjum gildishlaðinna orða, svo hægt er að ímynda sér hvað það er að vera manneskja í stærra samhengi. Meginhugmyndin er að spyrja spurninga um sagn- og félagsfræðilega merkingu hins mannlega, svo sem hún varðar það hvað og hver við teljum tilheyra samfélaginu.