Lengi skal manninn reyna – sýningarstjóraspjall og sýningarlok

Nú líður senn að lokum yfirlitssýningarinnar Lengi skal manninn reyna, þar sem sjá má á verk eftir hinn fjölhæfa listamann Þorvald Þorsteinsson, en síðasti sýningardagur er 20. febrúar næstkomandi. Þá mun Ágústa Kristófersdóttir, sýningarstjóri og fyrrverandi forstöðumaður Hafnarborgar, taka á móti gestum kl. 14 ásamt Hallgrími Helgasyni, rithöfundi og myndlistarmanni, og munu þau ræða líf og list Þorvaldar.

Sýningin er unnin í samstarfi við Listasafnið á Akureyri og eignasafn Þorvaldar Þorsteinssonar. Á sýningunni getur að líta fjölbreytt úrval verka: skúlptúra, innsetningar, málverk og myndbandsverk sem varpa ljósi á þennan fjölhæfa listamann og það hvernig hann vann verk sín í tengslum við samfélagið. Sýningarstjórar eru Ágústa Kristófersdóttir, Guðrún Pálína Guðmundsdóttir og Helena Jónsdóttir.

Þorvaldur Þorsteinsson var afkastamikill listamaður og kennari sem nýtti sér flesta miðla í listsköpun. Auk þess að fást við myndlist samdi hann skáldsögur, leikrit, ljóð og tónlist og varð landsþekktur fyrir Vasaleikhúsið sem flutt var í Ríkisútvarpinu 1991 og síðar sýnt í sjónvarpi. Skáldsaga hans, Skilaboðaskjóðan, sló einnig rækilega í gegn þegar hún kom út árið 1986 og var síðar færð í leikbúning og sýnd í Þjóðleikhúsinu sem söngleikur árið 1993. Fjórar bækur Þorvaldar um Blíðfinn hafa verið þýddar á fjölda tungumála og Borgarleikhúsið setti upp leikrit hans And Björk, Of Course… árið 2002. Hann hélt fjölmargar einkasýningar, jafnt á Íslandi sem erlendis, og tók þátt í alþjóðlegum samsýningum víða um heim.