Sunnudagurinn 18. ágúst er lokadagur sýningarinnar Kassíópeiu eftir Guðnýju Guðmundsdóttur og því mun listakonan taka á móti gestum í safninu á milli kl. 15 og 17 og segja frá verkum sínum á sýningunni. Þar getur að líta mestmegnis ný og nýleg verk eftir listakonuna, sem hún vinnur á pappír og í leir, auk vídeóverka. Þá speglar hún sjálfa sig í verkunum og dregur fram pælingar um sært egó, sjálfsupphafningu og sjálfselsku, þar sem innblástur er sóttur í gríska goðafræði.
Áhorfandinn stígur inn í óræðan heim, þar sem finna má titla á ólíkum tungumálum (þýsku, frönsku, ensku og íslensku), áletranir og fjölda vísana í verur og fyrirbæri úr hinum klassíska heimi. Þá færa verkin okkur fram og til baka í tíma og fá okkur til að velta vöngum yfir innri tengingum eða sambandi, þar sem þau mynda eins konar stjörnumerki eða þyrpingu sem býður ef til vill upp á fleiri spurningar en svör.
Guðný Guðmundsdóttir (f. 1970) útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1993, Hochschule für bildende Künste Hamburg árið 2001 og hefur starfað við myndlist síðan. Í listsköpun sinni vinnur hún með miðla eins og teikningu, málverk, klippimyndir, skúlptúr og ljósmyndun. Guðný býr og starfar í Berlín.
Við vekjum jafnframt athygli á því að sunnudagurinn er lokadagur sýningarinnar Í tíma og ótíma, þar sem sjónum er beint að margvíslegum birtingarmyndum tímans í verkum listakvennanna Örnu Óttarsdóttur, Leslie Roberts og Amy Brener, í sýningarstjórn Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.