Hljóðön …þangað til…

Gunnlaugur Björnsson gítarleikari og Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari

Sunnudaginn 29. mars kl. 20 flytja Gunnlaugur Björnsson, gítarleikari og Hafdís Vigfúsdóttir, flautuleikari verk eftir Clarence Barlow, Halldór Smárason, Toru Takemitsu og Gunnlaug Björnsson. Tónleikarnir eru þeir þriðju á árinu hjá tónleikaröðinni Hljóðön og bera yfirskriftina …þangað til…

Hljóðön er tónleikaröð tileinkuð tónlist frá 20. og 21. öldinni þar sem einstök hugmyndaauðgi og listræn glíma tónskálda leiða áheyrendur inn á áður ókunnar slóðir. Nafn tónleikaraðarinnar skírskotar til smæstu merkingargreinandi hljóðeininga tungumála, grunneininga sem púsla má ólíkt saman svo úr verði tilraun til merkingar. Hafnarborg efnir hér til tónleikaraðar þar sem ætlunin er að kynna ólík verk samtímatónskálda úr fremstu röð. Í forgrunni verða verk sem fá best notið sín við þær aðstæður og miklu nánd sem býðst í sal Hafnarborgar og telja má sérstakan í flóru tónlistarsala á höfuðborgarsvæðinu.

Aðgöngumiðar á tónleikana eru seldir í afgreiðslu Hafnarborgar, á opnunartíma safnsins og klukkustund fyrir tónleika. Hægt er að panta miða í s. 585-5790. Almennt miðaverð er kr. 2500, fyrir eldri borgara og námsmenn kr. 1500.