Hljóðön – OCCAM með Juliu Eckhardt og John McCowen

Sunnudaginn 17. október kl. 20 fara fram tónleikar Juliu Eckhardt, víóluleikara, og John McCowen, kontrabassaklarínettuleikara og tónskálds. Tónleikarnir eru samstarf samtímatónleikaraðar Hafnarborgar, Hljóðana, og Sequences X – Kominn tími til.

Efnisskrá tónleikanna hverfist um ferðalag hlustunarinnar um yfirborð hljóðanna. Julia Eckhardt mun flytja verk Éliane Radigue, OCCAM IV, sem samið er sérstaklega fyrir Juliu. Tónlist Radigue er í senn lágstemmd og stórbrotin, þar sem iðandi líf leynist undir stilltu yfirborði hljóðheimsins. Julia flytur einnig verk sitt, Mother Viola (Study #1), sem dansar á mörkum tungumáls og hljóða. Í verki sínu, Models of Duration, þenur John McCowen út hljóðheim hljóðfæris síns svo okkur birtist að því er virðist smásær lífheimur innan tónlistarinnar.

Julia Eckhardt starfar á mörkum hljóðlistar, spunalistar og samtímatónlistar sem flytjandi, höfundur og skipuleggjandi. Er hún stofnmeðlimur og listrænn meðstjórnandi Q-O2 vinnurýmisins í Brussel. Sem flytjandi og spunaleikari hefur Julia starfað með fjölda listamanna á borð við Éliane Radigue, Phill Niblock, Pauline Oliveros, Jennifer Walshe, Wandelweiser-tónskáldahópinn, Rhodri Davies, Taku Sugimoto, Manfred Werder, Angharad Davies, Lucio Capece, Manu Holterbach, Anne Wellmer og Carol Robinson. Þá hafa sum samstarfsverkefnanna verið gefin út í hljóðriti. Julia hefur kennt við Lemmens-stofnunina í Leuven, LUCA og La Cambre í Brussel.

John McCowen er tónskáld og flytjandi sem einblínir á það að þenja út mörk og möguleika klarínettsins í tónlist sinni. Drónn, samsláttartónar og samsláttur yfirtóna eru meðal þess sem bregður fyrir í tónlist hans, þar sem hann leitast við að víkka út hljóðheim hljóðfærisins. Tónlist McCowen hefur verið lýst í The New Yorker sem „hljóðrænni hliðstæðu þess að bera smásæjan lífheim augum“. Tónlist hans hefur meðal annars verið gefin út hjá Edition Wandelweiser, International Anthem, Astral Spirits, Sound American. Árin 2017 og 2019 var John staðarlistamaður Lijiang Studio í Yunnan, Kína, og árið 2020 var hann staðarlistamaður við ISSUE Project Room í Brooklyn, New York. John er búsettur í Reykjavík og starfar sem leiðbeinandi í spunatónlist við Listaháskóla Íslands.

Samtímatónleikaröð Hafnarborgar, Hljóðön, er sérstaklega tileinkuð tónlist 20. og 21. aldar, þar sem einstök hugmyndaauðgi og listræn glíma tónskálda leiða áheyrendur inn á áður ókunnar slóðir, en tónleikaröðin hefur verið hluti af dagskrá Hafnarborgar síðan 2013. Tónleikarnir njóta auk þess stuðnings Tónlistarsjóðs og Franska sendiráðsins á Íslandi.

Verið öll velkomin – aðgangur ókeypis.