Hljóðön – HLJORÐ

Sunnudaginn 7. júní kl. 20, lýkur sjöunda starfsári tónleikaraðarinnar Hljóðana í Hafnarborg með tónleikum Ástu Fanneyjar Sigurðardóttur, listakonu og skálds, og Svans Vilbergssonar, gítarleikara. Yfirskrift tónleikanna – HLJORÐ – er nýyrði Ástu Fanneyjar, samsett úr orðunum „hljóð“ og „orð“ og er tilraun til að samþætta í eitt orð tvær ólíkar birtingarmyndir merkingar. Annars vegar fyrirframgefna merkingu orðanna og hins vegar samhengisbundna merkingu hljóða, þar sem merkingin sprettur fram eftir samhengi þeirra og samsetningu. Á tónleikunum fléttast ný og nýleg verk Ástu Fanneyjar saman við gítareinleiksverk í flutningi Svans eftir m.a. Hafliða Hallgrímsson, Huga Guðmundsson og Scott Wollschleger.

Ásta Fanney Sigurðardóttir vinnur meðal annars með tóna, hljóð og orð í verkum sínum, ásamt gjörningum. Henni er hið óvænta hugleikið og innleiðir oft væntingar hlustenda og áhorfenda í verk sín. Ásta hefur sýnt og flutt verk sín, ljóð og gjörninga á ýmsum hátíðum og sýningum bæði hérlendis og erlendis. Má þar nefna Listahátíð í Reykjavík, Tectonics í Aþenu, Raflost, Hróarskeldu, Eurosonic, Iceland Airwaves, Feneyjatvíæringinn, Norður og Niður-tónlistarhátíð, Stockholm International Poetry Festival, Stanza Poetry Festival og tilraunakenndu tónleikaseríuna Verpa eggjum, ásamt því að koma reglulega fram í tónlistarrýminu Mengi. Hún hefur einnig komið fram með öðrum á hátíðum á borð við Cycle Music and Art Festival og Sequences Real Time Art Festival, auk tónleikaferðalaga um Evrópu. Ásta Fanney hefur gefið út bókverkið Kaos Lexicon (2017) og ljóðabækurnar Herra Hjúkket (2012) og Eilífðarnón (2019).

Svanur Vilbergsson hefur haldið einleikstónleika víða um heim, m.a. í Bandaríkjunum, Hollandi, Spáni, Englandi, Belgíu og Írlandi. Meðal nýlegs má nefna einleikstónleika í Reykjavík Classics tónleikaröðinni í Eldborgarsal Hörpu, þar sem hann varð fyrsti klassíski gítarleikarinn til að spila einleik í þeim sal. Hann hefur komið fram í sjónvarpi í Bandaríkjunum og á Spáni og var valinn fyrir Íslands hönd til þátttöku í norsk-íslenska menningarverkefninu Golfstraumnum. Árið 2011 kom út fyrsti einleiksdiskur Svans, Four Works, sem hefur hlotið mjög góðar viðtökur. Svanur er einn listrænna stjórnenda og stofnenda alþjóðlegu gítarhátíðarinnar Midnight Sun Guitar Festival og er meðlimur í Íslenska gítartríóinu, auk þess sem hann hefur sérhæft sig í flutningi á íslenskri samtímatónlist.

Hljóðön er tónleikaröð tileinkuð tónlist 20. og 21. aldar, þar sem einstök hugmyndaauðgi og listræn glíma tónskálda leiðir áheyrendur inn á áður ókunnar slóðir. Hafnarborg efnir hér til tónleikaraðar þar sem ætlunin er að kynna ólík verk samtímatónskálda úr fremstu röð. Í forgrunni eru verk sem fá best notið sín við þær aðstæður og miklu nánd sem býðst í sal Hafnarborgar, sem telja má sérstakan í flóru tónlistarsala á höfuðborgarsvæðinu. Tónleikaröðin nýtur stuðnings mennta- og menningarmálaráðuneytis. Tónleikarnir voru upphaflega á dagskrá Hafnarborgar í apríl í tengslum við Bjarta daga í Hafnarfirði en tónleikunum var frestað til sumars af heilsufarssjónarmiðum.

Aðgöngumiðar eru seldir í Hafnarborg. Almennt miðaverð kr. 2.500, verð fyrir eldri borgara og námsmenn kr. 1.500.