Hádegistónleikar – Magnea Tómasdóttir

Magnea Tómasdóttir

Þriðjudaginn 5. apríl kl. 12 mun Magnea Tómasdóttir, sópran, koma fram á hádegistónleikum ásamt Antoníu Hevesi, píanóleikara, þar sem þær munu flytja vel valdar aríur eftir tónskáld á borð við Verdi, Wagner, Stolz og fleiri.

Magnea Tómasdóttir, sópran, hóf söngnám hjá Unni Jensdóttur í Tónlistarskóla Kópavogs og lauk 8. stigsprófi hjá henni við Tónlistarskóla Seltjarnarness. Á árunum 1993-1996 stundaði Magnea framhaldsnám hjá Hazel Wood í Trinity College of Music í London. Söngkennarar hennar í dag eru Jón Þorsteinsson og Hlín Pétursdóttir Behrens. Á árunum 1997-1999 var Magnea við Óperustúdíóið í Köln og leikárið 1999-2000 var hún fastráðin söngkona við sama hús og söng hin ýmsu óperuhlutverk m.a. í Töfraflautunni og í Valkyrjunni eftir Wagner. Þá fór hún með hlutverk Sentu í Hollendingnum fljúgandi í Þjóðleikhúsinu á Listahátíð í Reykjavík vorið 2002.

Magnea hefur einnig komið fram sem einsöngvari við ýmis tækifæri á Íslandi, Þýskalandi, Svíþjóð, Hollandi, Ítalíu og Englandi. Árið 2003 gaf Smekkleysa út plötuna Allt svo verði til dýrðar þér en þar fluttu Magnea og Guðmundur Sigurðsson, organisti, þjóðlög við sálmavers m.a. Passíusálma Hallgríms Péturssonar. Síðustu misseri hefur Magnea helgað tónlistariðkuninni krafta sína, sem og markvissri tónlistarhlustun fólks með heilabilunarsjúkdóma. Magnea er stundakennari í Listaháskóla Íslands á námskeiðinu „Tónlist og heilabilun“, þar sem unnið er með tónlistarspuna í tónlistarsmiðjum og sköpunarferlið sjálft er kjarni smiðjunnar.

Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, þar sem hún hefur fengið marga af fremstu söngvurum landsins til liðs við sig. Hádegistónleikar eru að venju á dagskrá Hafnarborgar fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Húsið opnar kl. 11:30 og tónleikarnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.