Hádegistónleikar – Ingveldur Ýr – STREYMI

Ingveldur Ýr

Þriðjudaginn 6. apríl kl. 12 mun Ingveldur Ýr Jónsdóttir mezzosópran, koma fram á hádegistónleikum ásamt Antoníu Hevesi, píanóleikara. Á tónleikunum sem eru titilaðir Ljós og skuggi verða fluttar aríur eftir Caccini, Menotti og Bizet.

Vegna gildandi samkomutakmarkana verður tónleikunum streymt í beinni útsendingu á netinu, sem má sjá í spilara hér fyrir neðan, auk þess sem upptakan verður aðgengileg áfram að tónleikunum loknum, bæði hér á heimasíðu Hafnarborgar og á Facebook-síðu safnsins.

Ingveldur Ýr Jónsdóttir mezzósópran lauk námi frá Tónlistarskóla Vínarborgar og Manhattan School of Music í New York. Ingveldur Ýr var um skeið fastráðin við Óperuna í Lyon í Frakklandi og söng þar stór og smá hlutverk með þekktum stjórnendum og söngvurum, auk þess að syngja víða í Evrópu og Bandaríkjunum. Á íslensku óperusviði hefur Ingveldur sungið fjölmörg aðalhlutverk í óperuuppfærslum, auk þess að koma fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Capút hópnum. Hún hefur víða haldið einsöngstónleika og kemur fram á ýmsum geisladiskum, m.a. sólódiskinum Portrett. Ingveldur Ýr rekur sitt eigið söngstúdíó ásamt því að vera stjórnandi sönghópsins Spectrum sem hefur getið sér gott orð.