Hádegistónleikar – Alda Ingibergsdóttir

Þriðjudaginn 9. nóvember kl. 12 kemur hafnfirska sópransöngkonan Alda Ingibergsdóttir fram á næstu hádegistónleikum í Hafnarborg, ásamt Antoníu Hevesi, píanóleikara. Á tónleikunum mun Alda flytja aríur eftir Puccini undir yfirskriftinni Hún er sæt en ákveðin.

Alda Ingibergsdóttir er fædd og uppalin í Hafnarfirði. Hún lauk einsöngvaraprófi frá Söngskólanum í Reykjavík og fór síðan í framhaldsnám við Trinity College of Music í London. Meðal hlutverka Öldu eru Pamina í Töfraflautunni, Lillian Russell í The Mother of Us All eftir Virgil Thomson, fyrsti andi í Töfraflautunni, Dísa í Galdra-Lofti Jóns Ásgeirssonar, Næturdrottningin í Töfraflautunni, Arzena í Sígaunabaróni Strauss, Helena fagra í samnefndri óperu Offenbachs og káta ekkjan í samnefndri óperettu Lehárs. Þá hefur Alda haldið tónleika víða og komið fram sem einsöngvari ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands og Tufts Symphony Orchestra í Boston.

Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, þar sem hún hefur fengið marga af fremstu söngvurum landsins til liðs við sig. Hádegistónleikar eru vanalega á dagskrá Hafnarborgar fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.

Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Húsið opnar kl. 11:30 og tónleikarnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis en mælst er til þess að gestir beri andlitsgrímur, þar sem ekki er unnt að tryggja 1 metra nálægðarmörk á milli ótengdra einstaklinga.