Hádegistónleikar í febrúar – Viðar Gunnarsson

Viðar Gunnarsson bassi og Antonía Hevesi píanóleikari

Viðar Gunnarsson kemur fram á hádegistónleikum í Hafnarborg þriðjudaginn 24. febrúar kl. 12 ásamt Antóníu Hevesi píanóleikara. Á tónleikunum sem bera nafnið Ást og bænir mun Viðar flytja þekktar ítalskar aríur eftir W. A. Mozart, G. Donizetti og G. Verdi. Þetta verða fyrstu hádegistónleikarnir eftir áramót en fyrr á þessu tónleikaári komu fram Elmar Gilbertsson, Hlín Pétursdóttir, Kristján Jóhannsson og Hanna Þóra Guðbrandsdóttir. Í marsmánuði mun Sigrún Pálmadóttir sópran flytja ítalskt prógram og í apríl er það Hafnfirðingurinn Sigurður Skagfjörð sem flytur vel valin verk.

Viðar Gunnarsson stundaði tónlistarnám við Söngskólann í Reykjavík og síðar framhaldsnám hjá dr. Folke Sällström í Stokkhólmi á árunum 1981 til 1984.  Viðar hefur komið fram í óperuhúsum víða um heim ásamt því að syngja reglulega við Þjóðleikhúsið og Íslensku óperuna. Viðar var ráðinn óperusöngvari við Kammeróperuna og Schönbrunner Schloßtheater í Vínarborg 1989-1990 og var fastráðinn við Ríkisleikhúsið í Wiesbaden á árunum 1990 til 1995. Viðar hefur á sínum ferli sungið flest öll helstu bassahlutverk óperubókmenntanna, en þá má nefna Colline í La Bohème, Pater Guardiano í Á valdi örlaganna, Sarastro íTöfraflautunni, Il Commendatore í Don Giovanni, titilhlutverkið í Boris Godunov auk ólíkra hlutverka í mörgum af óperum Wagners. Viðar Gunnarsson hefur verið mjög virkur í sönglífinu eftir að hann flutti heim frá Þýskalandi og hefur meðal annars tekið reglulega þátt í uppfærslum Íslensku Óperunnar í Hörpu.

Antonía Hevesi píanóleikari hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg og valið með sér marga af fremstu söngvurum landsins.

Hádegistónleikar Hafnarborgar eru haldnir mánaðarlega. Þeir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund, þeir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Húsið er opnað kl. 11.30.